Fréttasafn

Breyting á kjördæmissætum í Norðvesturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi.

Breyting á kjördæmissætum í Norðvesturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi.

Auglýsing
frá landskjörstjórn um breytingu á kjördæmissætum
í Norðvesturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi.

Landskjörstjórn gjörir kunnugt:
Við nýafstaðnar alþingiskosningar voru kjósendur að baki hverju þingsæti í Norðvestur-kjördæmi 2.163, innan við helmingur kjósenda að baki hverju þingsæti í Suðvesturkjördæmi sem voru 4.366.
Með vísan til 5. mgr. 31. gr. stjórnarskrárinnar hefur landskjörstjórn því ákveðið að við næstu almennar alþingiskosningar skuli níu þingsæti vera í Norðvesturkjördæmi, átta kjör-dæmissæti og eitt jöfnunarsæti, en tólf þingsæti í Suðvesturkjördæmi, tíu kjördæmissæti og tvö jöfnunarsæti, sbr. enn fremur 8. og 9. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000.

Reykjavík, 16. maí 2003.

Þorvaldur Lúðvíksson.

Gestur Jónsson.       Ástráður Haraldsson.

Elsa S. Þorkelsdóttir.    Gísli Baldur Garðarsson.


______________
Þórður Bogason

 

 

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.