Fréttasafn

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

 

Eins og oft áður eru kjósendur sem greiða atkvæði utan kjörfundar, áður en framboð hafa verið auglýst, í töluverðri óvissu um það hvaða listar eru í boði.

Ráðuneytið telur að stjórnvöld hafi í þessu efni nokkra leiðbeiningarskyldu og af þeim sökum sé rétt að þessir kjósendur geti stuðst við blað, sem liggur frammi, þar sem skráð eru heiti og listabókstafir lista, bæði þeirra sem buðu fram við síðustu Alþingiskosningar og þeirra lista sem hafa fengið listabókstaf nýverið. Listarnir N og T eru nýir. Rétt er að árétta að óvíst er hvort allir þeir sem buðu fram 1999 muni bjóða fram í kosningunum nú.

Umræddur listi fylgir hér að neðan, þannig að tryggt sé að sami listi sé alls staðar notaður.
Framboðin eru þessi:


B Framsóknarflokkur

D Sjálfstæðisflokkur

F Frjálslyndi flokkurinn

H Húmanistaflokkur

K Kristilegi lýðræðisflokkurinn

N Stjórnmálasamtökin Nýtt afl

S Samfylkingin

T Framboð óháðra í Suðurkjördæmi

U Vinstrihreyfingin-grænt framboð

Z Anarkistar á Íslandi

 

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.