Upplýsingavefur vegna alþingiskosninganna, sem fram fóru 10. maí árið 2003, er í umsjón Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Þetta er í fyrsta sinn sem upplýsingar af hálfu hins opinbera vegna alþingiskosninga eru settar fram með þessum hætti. Vefurinn er gerður með aðgengi sjónskertra í huga. Á upplýsingavefnum er að finna fræðandi og hagnýtar upplýsingar um atriði sem lúta að næstu alþingiskosningum. Upplýsingarnar eiga að nýtast almennum kjósendum, stjórnmálasamtökum og þeim sem vinna að kosningunum, t.d. varðandi kjörskrá, utankjörfundaratkvæðagreiðslu og atkvæðagreiðslu á kjördegi.

Fréttir og tilkynningar

Auglýsing frá landskjörstjórn um úrslit kosninga til Alþingis 10. maí 2003.

Landskjörstjórn gjörir kunnugt að eftirtaldir frambjóðendur náðu kjöri sem þingmenn í almennum kosningum til Alþingis, sem fram fóru laugardaginn 10. maí 2003: Lesa meira
 

Úrslit alþingiskosninganna 10. maí 2003

Hér má finna úrslit alþingiskosninganna sem fram fóru 10. 2003. Atkvæðatölur og hlutfallslega skiptingu atkvæða. Lesa meira
 

Úthlutun jöfnunarsæta

Úthlutun jöfnunarsæta við alþingiskosningarnar og útreikningar eru sýnd hér   Lesa meira
 

Úthlutun þingsæta

Upplýsingar um úthlutun kjördæmissæta og jöfnunarsæta til framboða og yfirlit heildarúthlutunar þingsæta eftir kyni. Lesa meira
 

Breyting á kjördæmissætum í Norðvesturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi.

Auglýsing frá landskjörstjórn um breytingu á kjördæmissætum í Norðvesturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi. Lesa meira
 

Kjörstaðir á kjördag

Hér er að finna yfirlit yfir kjörstaði á kjördag í þéttbýliskjördæmum. Einnig eru tenglar á kosningaupplýsingar þeirra sveitarfélaga sem hafa komið sér upp slíkum síðum. Lesa meira
 

Leiðbeiningar á kjörfundi

Hér er að finna leiðbeiningar um hvernig kjósandi eigi að bera sig að á kjörfundi, hvað á að gera, hvað má gera og hvað má ekki gera. Lesa meira
 

Hvar kýs ég utankjörfundar?

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumönnum um land allt.  Hér er að finna upplýsingar fyrir þá sem vilja kjósa utankjörfundar nú fyrir alþingiskosningarnar 10. maí. Lesa meira
 

Auglýsing frá Landskjörstjórn - framboðslistar

Landskjörstjórn gjörir kunnugt með vísan til 44. gr. laga um kosningar til Alþingis að bornir hafa verið fram eftirtaldir listar í öllum kjördæmum landsins við alþingiskosningarnar sem fram eiga að fara 10. maí 2003. Lesa meira
 

Tilkynning frá landskjörstjórn

Landskjörstjórn tekur framboðslista sem bornir eru fram við alþingiskosningar sem fram fara laugardaginn 10. maí 2003 til meðferðar og afgreiðslu á fundi sínum mánudaginn 28. apríl 2003 kl. 18.00 á 2. hæð í Austurstræti 8-10, Reykjavík. Lesa meira
 

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Eins og oft áður eru kjósendur sem greiða atkvæði utan kjörfundar, áður en framboð hafa verið auglýst, í töluverðri óvissu um það hvaða listar eru í boði. Lesa meira
 

Breytt kjördæmaskipan

Í kjölfar stjórnarskrárbreytingar árið 1999 var lögum um kosningar til Alþingis breytt til samræmis við stjórnarskrána og var kjördæmum fækkað úr átta í sex. Þrjú þessara sex kjördæma eru á landsbyggðinni og þrjú á höfuðborgarsvæðinu.


English

Information in english Selected articles that are meant to shed light on the Icelandic electoral process.
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.