Frambjóðendur 1999

Frambjóðendur 1999

Frambjóðendur í alþingiskosningum 1999

Stöplarit yfir skiptingu frambjóðenda 1999 eftir kyni

Hér að neðan getur að líta töflu yfir fjölda frambjóðenda í alþingiskosningunum 1999 og skiptingu eftir kyni.  Margt áhugavert kemur þar fram, t.d. varðandi kynjahlutföll í gömlu kjördæmum hins nýja norðvesturkjördæmis. Þar sést að 64,2% frambjóðenda voru karlmenn, en þegar litið er á sæti 1-3 þá kemur í ljós að hlutfallið hækkar í 72%.  Fátt bendir til að þetta hlutfall muni breytast umtalsvert í þessu kjördæmi fyrir næstu kosningar.

 

  Allir frambjóðendur Frambjóðendur í 1.-3. sæti
  Fjöldi % Fjöldi %
  Alls Karlar Konur Karlar Konur Alls Karlar Konur Karlar Konur
Frambjóðendur alls 776 464 312 60 40 153 100 53 65 35
Kjördæmi:                    
Reykjavíkurkjördæmi 280 160 120 57 43 24 16 8 67 33
Reykjaneskjördæmi 144 79 65 55 45 21 13 8 62 38
Vesturlandskjördæmi 55 35 20 64 36 18 13 5 72 28
Vestfjarðakjördæmi 55 32 23 58 42 18 12 6 67 33
Norðurlandskjördæmi vestra 55 39 16 71 29 18 14 4 78 22
Norðurlandskjördæmi eystra 66 39 27 59 41 18 9 9 50 50
Austurlandskjördæmi 55 37 18 67 33 18 13 5 72 28
Suðurlandskjördæmi 66 43 23 65 35 18 10 8 56 44
                     
Stjórnmálasamtök:                    
B Framsóknarflokkur 126 69 57 55 45 24 16 8 67 33
D Sjálfstæðisflokkur 124 72 52 58 42 24 17 7 71 29
F Frjálslyndi flokkurinn 126 98 28 78 22 24 18 6 75 25
H Húmanistaflokkur 80 47 33 59 41 24 15 9 63 38
K Kristilegi lýðræðisflokkurinn 31 22 9 71 29 6 5 1 83 17
S Samfylkingin 126 63 63 50 50 24 12 12 50 50
U Vinstrihreyfingin-grænt framboð 126 71 55 56 44 24 15 9 63 38
Z Anarkistar á Íslandi 37 22 15 59 41 3 2 1 67 33

Þegar litið er á stjórnmálaflokka þá er það ljóst að minnst jafnræði var með kynjunum hjá Frjálslynda flokknum og Kristilega lýðræðisflokknum en mest hjá Samfylkingunni.

Heimild: Alþingiskosningarnar 1999, útgefið af Hagstofu Íslands

 

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.