Úthlutun jöfnunarsæta

Útreikningar við úthlutun jöfnunarsæta

Úthlutun jöfnunarsæta

Athuga ber að allar tölur hér að neðan eru skáldskapur og aðeins notaðar í dæmaskyni.

Við útreikning jöfnunarsæta þarf að skoða landið í heild sinni. Fyrst er d'Hondt-reglunni beitt á hvert kjördæmi fyrir sig. Dæmið hér að neðan miðar við 5 stjórnmálasamtök og 6 kjördæmi sem eru í sambærilegum stærðarhlutföllum og er hér á landi. Kjördæmakjörnir þingmenn eru merktir með grænu og næsti maður inn er merktur með gulu.

Kjördæmatöflur

Kjördæmi 1 W X Y Z Þ
atkvæði 13.530 11.437 7.252 3.500 361 36.080
Atkv. deilt með 1 1. 37,50% 2. 31,70% 3. 20,10% 9. 9,70% 1,00%  
Atkv. deilt með 2 4. 18,75% 5. 15,85% 8. 10,05%   4,85% 0,50%  
Atkv. deilt með 3 6. 12,50% 7. 10,57% * 6,70%   3,23% 0,33%  
Atkv. deilt með 4 * 9,38%   7,93%   5,03%   2,43% 0,25%  
Atkv. deilt með 5   7,50%   6,34%   4,02%   1,94% 0,20%  
Atkv. deilt með 6   6,25%   5,28%   3,35%   1,62% 0,17%  
Kjördæmakj.   3   3   2   1 0 9

Eftir að búið er að reikna kjördæmakjörna þingmenn (grænir reitir) þá er tekin saman skrá (úthlutunarskrá) um þau tvö sæti hvers framboðslista sem næst komust því að fá úthlutun í kjördæmi. Þau eru merkt hér með undirstrikun og færð í töflu sem er síðar notuð við úthlutun jöfnunarsæta. Hér á eftir fylgja töflur fyrir hvert kjördæmi fyrir sig.

Kjördæmi 2 W X Y Z Þ  
atkvæði   6.146   6.516   3.018   2.277 555 18.512
Atkv. deilt með 1 2. 33,20% 1. 35,20% 5. 16,30% 6. 12,30% 3,00%  
Atkv. deilt með 2 4. 16,60% 3. 17,60% * 8,15%   6,15% 1,50%  
Atkv. deilt með 3 8. 11,07% 7. 11,73%   5,43%   4,10% 1,00%  
Atkv. deilt með 4   8,30% 9. 8,80%   4,08%   3,08% 0,75%  
Atkv. deilt með 5   6,64%   7,04%   3,26%   2,46% 0,60%  
Atkv. deilt með 6   5,53%   5,87%   2,72%   2,05% 0,50%  
Kjördæmakj.   3   4   1   1 0 9
                     
Kjördæmi 3 W X Y Z Þ  
atkvæði   12.253   10.402   5.181   9.991 3.289 41.116
Atkv. deilt með 1 1. 29,80% 2. 25,300% 6. 12,60% 3. 24,30% 8,00%  
Atkv. deilt með 2 4. 14,90% 5. 12,65%   6,30% 7. 12,15% 4,00%  
Atkv. deilt með 3 8. 9,93% 9. 8,43%   4,20% * 8,10% 2,67%  
Atkv. deilt með 4   7,45% * 6,33%   3,15%   6,08% 2,00%  
Atkv. deilt með 5   5,96%   5,06%   2,52%   4,86% 1,60%  
Atkv. deilt með 6   4,97%   4,22%   2,10%   4,05% 1,33%  
Kjördæmakj.   3   3   1   2   9
                     
Kjördæmi 4 W X Y Z Þ  
atkvæði   6.697   4.349   2.558   8.372 1.279 23.255
Atkv. deilt með 1 2. 28,80% 3. 18,70% 7. 11,00% 1. 36,00% 5,50%  
Atkv. deilt með 2 5. 14,40% 9. 9,35%   5,50% 4. 18,00% 2,75%  
Atkv. deilt með 3 8. 9,60%   6,23%   3,67% 6. 12,00% 1,83%  
Atkv. deilt með 4   7,20%   4,68%   2,75% * 9,00% 1,38%  
Atkv. deilt með 5   5,76%   3,74%   2,20%   7,20% 1,10%  
Atkv. deilt með 6   4,80%   3,12%   1,83%   6,00% 0,92%  
Kjördæmakj.   3   2   1   3 0 9
                     
Kjördæmi 5 W X Y Z Þ  
atkvæði   11.429   8.836   6.828   8.909 511 36.514
Atkv. deilt með 1 1. 31,30% 3. 24,20% 4. 18,70% 2. 24,40% 1,40%  
Atkv. deilt með 2 5. 15,65% 7. 12,10% 9. 9,35% 6. 12,20% 0,70%  
Atkv. deilt með 3 8. 10,43%   8,067%   6,23% * 8,13% 0,47%  
Atkv. deilt með 4 * 7,83%   6,05%   4,68%   6,10% 0,35%  
Atkv. deilt með 5   6,26%   4,84%   3,74%   4,88% 0,28%  
Atkv. deilt með 6   5,22%   4,03%   3,12%   4,07% 0,23%  
Kjördæmakj.   3   2   2   2 0 9
                     
Kjördæmi 6 W X Y Z Þ  
atkvæði   8.499   6.947   2.414   5.962 813 24.635
Atkv. deilt með 1 1. 34,50% 2. 28,20% 8. 9,80% 3. 24,20% 3,30%  
Atkv. deilt með 2 4. 17,25% 5. 14,10%   4,90% 6. 12,10% 1,65%  
Atkv. deilt með 3 7. 11,50% 9. 9,40%   3,27%   8,07% 1,10%  
Atkv. deilt með 4 * 8,63%   7,05%   2,45%   6,05% 0,83%  
Atkv. deilt með 5   6,90%   5,64%   1,96%   4,84% 0,66%  
Atkv. deilt með 6   5,75%   4,70%   1,63%   4,03% 0,55%  
Kjördæmakj.   3   3   1   2 0 9

Röð jöfnunarsæta

Þegar búið er að úthluta öllum kjördæmasætum er komið að jöfnunarsætum. Þau stjórnmálasamtök koma ein til álita við úthlutun jöfnunarsæta sem hlotið hafa a.m.k. fimm af hundraði af gildum atkvæðum á landinu öllu. Í þessu dæmi nær Þ-listi ekki 5% og kemur því ekki til álita við úthlutun jöfnunarsæta. Til þess að finna hve mörg jöfnunarsæti koma í hlut stjórnmálasamtaka sem koma til greina við úthlutun og hvaða framboðslistar þeirra hljóta jöfnunarsæti skal fyrst telja saman atkvæðatölur þeirra á landinu öllu og kjördæmissæti þeirra. Þá er deilt í atkvæðatölur samtakanna með tölu kjördæmissæta þeirra, fyrst að viðbættum 1, síðan 2, þá 3 o.s.frv. Útkomutölurnar nefnast landstölur samtakanna. Þá er d'Hondt reglunni beitt á landstölurnar og skipting og röð jöfnunarsætanna fundin.

Landstölur W-lista eru fundnar með eftirfarandi hætti: Kjördæmissæti W-lista eru 18, atkvæðatala listans er 58.554. Landstölur listans eru því: 58.554/(18+1)=3081,79 - 58.554/(18+2)=2927,7 - 58.554/(18+3)=2788,29 o.s.frv.

Landið allt   W X Y Z Þ  
Samtals kjördæmissæti K 18 17 8 11 0 54
Hlutfall af greiddum atkv.   32,51% 26,92% 15,13% 21,66% 3,78%  
Atkvæði á landinu A 58.554 48.488 27.251 39.011 6.809 180.112
Deilt er í atkvæðafjölda með fjölda kjördæmissæta að viðbættum 1 svo 2 þá 3 o.frv. A/(K+1) 2. 3.082 9. 2.694 3. 3.028 1. 3.251    
A/(K+2) 5. 2.928   2.552 8. 2.725 4. 3.001    
A/(K+3) 6. 2.788   2.424   2.477 7. 2786    
A/(K+4)   2.662   2.309   2.271   2.601    
  A/(K+5)   2.546   2.204   2.096   2.438    
  A/(K+6)   2.440   2.108   1.946   2.295    
      2.342   2.020   1.817   2.167    
      2.252   1.940   1.703   2.053    
    3   1   2   3      

 

Úthlutunarskrá

Þegar búið er að finna röð jöfnunarsætanna þá er farið í skrá þá sem tekin var saman yfir þau tvö sæti hvers framboðslista sem næst voru að komast inn (undirstrikuðu tölurnar í kjördæmatöflunum að ofan). Z-listi á fyrsta jöfnunarsætið og þá er litið í dálk Z-lista og fundin hæsta hlutfallstala sem sá listi hefur. Það jöfnunarsæti fer í kjördæmi 4. W-listi á næsta jöfnunarsæti, hæsta hlutfallstala þess lista er í kjördæmi 1. Því næst er komin röðin að Y-lista og svo koll af kolli. Þegar kemur að 6. jöfnunarsætinu þá má sjá að það lendir í kjördæmi 5 þótt W-listi eigi hærri hlutfallstölu í kjördæmi 2, en Y-listi átti 3. jöfnunarsætið og hæsta hlutfallstala þess lista var einnig í kjördæmi 2. Kjördæmi 2 á einungis 1 jöfnunarsæti og þar sem Y-listi var framar í röðinni fellur sætið í hlut Y-lista. Þannig er haldið áfram að úthluta jöfnunarsætum þar til öllum sætunum er úthlutað.

  W X Y Z Alls
jöfnunarsæti
Kjördæmi 1 2. 9,38%   7,93% 8. 6,70%   4,85% 2
    7,50%   6,34%   5,03%   3,23%  
Kjördæmi 2   8,30%   7,04% 3. 8,15%   6,15% 1
    6,64%   5,87%   5,43%   4,10%  
Kjördæmi 3   7,45% 9. 6,33%   6,30% 7. 8,10% 2
    5,96%   5,06%   4,20%   6,08%  
Kjördæmi 4   7,20%   6,23%   5,50% 1. 9,00% 1
    5,76%   4,68%   3,67%   7,20%  
Kjördæmi 5 6. 7,83%   8,07%   6,23% 4. 8,13% 2
    6,26%   6,05%   4,68%   6,10%  
Kjördæmi 6 5. 8,63%   7,05%   4,90%   8,07% 1
    6,90%   5,64%   3,27%   6,05%  
Alls jöfnunarsæti 3   1   2   3   9

Til að fá betri yfirsýn yfir hvar hvert jöfnunarsæti raðast niður í kjördæmi þá eru þau stjörnumerkt í kjördæmatöflunum hér að ofan.

 

Útkomutafla

Hér að neðan er útkoma úthlutunar í heild sinni.

Þingmenn alls W X Y Z Alls
Kjördæmissæti 18 17 8 11  
Jöfnunarsæti 3 1 2 3  
  21 18 10 14 63,00
           
Hlutfall atkvæða
stjórnmálasamtaka
32,51% 26,92% 15,13% 21,66% 96,22%
Hlutfall þingmanna
stjórnmálasamtaka
33,33% 28,57% 15,87% 22,22% 100%



.

 

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.